Þú getur verið viss um að þú kemst á netið á tjaldstæðinu á Flúðum. Þráðlaust net fyrir alla gesti á meðan á dvöl stendur. Skoðaðu möguleikana á skemmtilegu fríi á Flúðum og afrþreyinguna sem í boði er.
rafmagn beint í hjól- eða fellihýsið.
Rafmagn er á svæðinu fyrir allt að 150 hjól- og fellihýsi. Fjölgun á rafmagnsgáttum stendur til.
öflug þjónustumiðstöð.
Í þjónustumiðstöðinni er öll helsta þjónusta við ferðamenn. Bæklingar liggja frammi með upplýsingum um allskyn afrþeyingu á svæðinu, gönguleiðir og þjónustu. Einnig er hægt að kaupa kol á grillið, ísmola og annað smálegt.
steypiböð og WC.
Þægileg hreinlætisaðstaða er á tjaldstæðinu á Flúðum. Við leggjum okkur fram um snyrtimennsku og hreinlæti og þú getur gengið að þessari aðstöðu allan sólarhringinn.
skelltu í vél.
Í tjaldmiðstöðinni á Flúðum er þvottavél og þurrkari þannig að ekki er vandamál að skella í eina vél sé þess þörf eftir votan göngutúr eða smáfólkið hefur leikið sér í sandinum.